mánudagur, 12. september 2011

USA

Ég er að fara til New York í október og það er svo margt sem ég hlakka svo til að skoða, kaupa og prófa!

Það sem ég man í augnablikinu er:
Smakka Amerískt nammi!

Fara að borða á The Cheesecake Factory

Kaupa mér White Strips og vera með sjúklega hvítar tennur í vetur ;)

Sjá Empire State bygginguna!

Fá mér frappochino á Starbucks

Sjá frelsisstyttuna

Kaupa mér loksins Lita skó sem mig er búið að langa í alltof lengi!

Kaupa endalaust af ódýrum snyrtivörum

Fá mér New York pizzu með Kim og Kourtney vinkonum mínum (auðvitað mun ég líka kíkja við í DASH!)

Versla smááá..

Rölta um Times Square

Fara í Victoria's Secret
Svo hlakka mig alveg ótrúlega til að fara í Wal Mart!! Kannski ég komi með mína eigin myndaséru af "People of Wal Mart" þegar ég kem heim ;)



... og fleira og fleira!!

Ef það er eitthvað af ykkur hundruðum lesenda þarna úti sem dettur eitthvað sérstakt í hug sem er möst að kaupa í USA endilega láta mig vita :)

- EB




2 ummæli:

  1. ó Evi það er svo gaman í New York, held ég hafi gert mest allt af listanum þínum

    Mæli með að fara í svona túrista hop on off bus, ég keypti mér 48 hour passa og keypti svona pakka þar sem var sigling á hudson og siglt beint fyrir framan frelsistyttuna ( óþarfi finnst mér að fara á eyjuna þar sem það má ekki lengur fara upp í styttuna) og svo miða i Top of the Rock (rockafeller tower) flestir mældu með að fara frekar þar upp heldur en Empire því það getur oft verið svo svakaleg röð í Empire :) Geggjað útsýni :)

    En með cheesecake factory þá spurðist ég fyrir á hotelinu og hann sagði mér að það væri ekkert cheesecake factory allavegana á manhattansvæðinu, veit ekki hvort það sé ef maður er kominn eitthvað út fyrir þannig ég myndi kanna það :)

    En þetta er pretty basic sem þú skrifaðir og ju algjört must að fara í Central Park og fara með nesti og fylgjast með mannlífinu í garðinum , allt svo fallegt :)

    þetta verður awsome hjá þér :D

    (afsakið langa kommentið )

    SvaraEyða
  2. úú geggjað!! Takk æðislega Jógý mín ;) langar svo að leigja hjól og fara með nesti og hjóla í central park!

    SvaraEyða